Áttu 2 mínútur? GDRN og Logi Pedro fara yfir nokkur hugtök í tónlistabransanum.

Að skrá tónlist er ekki flókið en það þarf að gera það á réttan hátt. Það krefst ákveðnar þekkingar að snúa sér rétt í þessum málum. Það er allt of auðvelt að gefa út tónlist og skrá hana rangt og þá færðu ekki greitt fyrir hana. Þessi myndbandssería inniheldur allt sem að þarf að vita til að byrja að feta sig í tónlistarbransanum.